HSS
HSS

Fréttir

 Breytingar á rútuferðum til og frá Grindavík
Mánudagur 21. september 2009 kl. 17:22

Breytingar á rútuferðum til og frá Grindavík


Breytingar hafa orðið á rútuferðum fyrir þá Grindvíkinga sem sækja nám eða vinnu til Reykjavíkur en seinni ferð Salty Tours að vegamótunum við Reykjanesbraut kl. 19:00 fellur niður. Þess í stað fer rúta SBK/Kynnisferða frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 18 beint til Grindavíkur, með viðkomu í Bláa lóninu.

Rútuferðirnar verða eftirfarandi:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Rútan frá Salty Tours fer áfram frá Braut kl. 6.40 að vegamótunum við Reykjanesbraut og í veg fyrir rútu SBK sem fer til Reykjavíkur.

Rúta SBK/Kynnisferða fer frá Umferðarmiðstöðinni kl. 16 og rúta Salty Tours tekur farþega við Grindavíkurveg kl. 16.45.

Rúta Kynnisferða fer frá Umferðarmiðstöðinni kl. 18 og fer hún beint til Grindavíkur með viðkomu í Bláa lóninu. Einnig eru ferðir frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10 og 14 með viðkomu í Bláa lóninu.