Bygg
Bygg

Fréttir

Breytingar á jarðhitanýtingu á Reykjanesi eru háðar umhverfismati
Mánudagur 19. september 2005 kl. 21:08

Breytingar á jarðhitanýtingu á Reykjanesi eru háðar umhverfismati

Umhverfisráðuneytið hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breytingar á jarðhitanýtingu á Reykjanesi, sem felast annars vegar í borun þriggja háhitaborhola rétt sunnan við núverandi iðnaðarsvæði og hins vegar breytingu á legu sjólagnar, skuli háðar mati á umhverfisáhrifum. Morgunblaðið á Netinu greinir frá þessu nú í kvöld

Ráðuneytinu bárust þrjár kærur vegna ákvörðunar Skipulagsstofnunar, frá Hitaveitu Suðurnesja hf., Grindavíkurkaupstað og Reykjanesbæ og frá Samorku, samtaka raforku-, hita- og vatnsveitna.

Ráðuneytið segir m.a. í úrskurði sínum, að engir þeir formgallar séu á hinni kærðu ákvörðun Skipulagsstofnunar sem leitt geti til þess að hún verði felld úr gildi af þeim sökum. Þá telji ráðuneytið, með hliðsjón af verndargildi og sérstöðu umrædds svæðis, einkum með tilliti til sérstæðra jarðmyndana sem njóta sérstakrar verndar samkvæmt lögum, auk gróðurfars, fuglalífs og landslags, að umhverfisáhrif fyrirhugaðra breytinga á framkvæmdum kunni að vera umtalsverð í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum.

Með hliðsjón af sérstöðu svæðisins, alþjóðlegu verndargildi þess, fræðslu- og útivistargildi telur ráðuneytið rétt að metin séu sammögnunaráhrif þessara breytinga og þeirra framkvæmda sem Skipulagsstofnun hefur áður fallist á. Er það því niðurstaða ráðuneytisins að staðfest skuli ákvörðun Skipulagsstofnunar um að breytingar á jarðhitanýtingu á Reykjanesi skuli háðar mati á umhverfisáhrifum, segir á vef Morgunblaðsins, mbl.is
Bílakjarninn
Bílakjarninn