Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðjudagur 9. maí 2000 kl. 13:29

Breyting á skólahverfum í athugun

Skóla- og fræðsluráð hefur lagt til að skólahverfi Holtaskóla verði stækkað til norðurs í sumar og er hugmyndin að bæta við hverfið götunum frá Smáratúni að Vesturgötu, Nónvörðu, Ásgarði, Baldursgarði, Fagragarði, Miðgarði, Hamragarði og Grænagarði. Nemendur sem nú eru í 9. bekk Heiðarskóla munu þó eiga þess kost að ljúka 10. bekk í núverandi skóla. Málið verður afgreitt í bæjarstjórn þriðjudaginn 16. maí. Ráðið vill með þessu nýta betur skólahúsnæði Reykjanesbæjar og jafna fjölda barna í bekkjadeildum skólanna, þannig að í hverri deild verði 20-24 nemendur. Þegar skipting skólahverfa hófst á síðasta ári var áætlað að um 430 börn myndu stunda nám í Heiðarskóla, en í vetur hafa nemendur verið um 460. Skýringar þessa fjölda eru óljósar. Að sögn Skúla Þ. Skúlasonar, oddvita bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, eru þetta talsverð vonbrigði og að líklega hafi réttar forsendur ekki verið fyrir hendi við skiptingu skólahverfa. „Þetta er mjög viðkvæmt mál, enda uppeldislega vafasamt að hreyfa börn mikið til á milli skóla, en það er það helsta sem mælir gegn tillögu skólanefndar,“ segir Skúli. „Ég tel að við ættum að einbeita okkur að stærstu árgöngunum í Heiðarskóla og að foreldrar þeirra skoðuðu það af mikilli alvöru að flytja börn sín í Holtaskóla. Í sumum árgöngum eru 26-29 nemendur í hverri deild í Heiðarskóla og því náum við ekki að veita þeim fullnægjandi þjónustu, eins og þau eiga skilið. Verði bekkjadeildir fámennari er auðveldara fyrir kennara að sinna hverjum og einum.“
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024