Bygg
Bygg

Fréttir

Breyting á Fasteign hf. skerðir ekki endurkaupsrétt
Þriðjudagur 12. febrúar 2008 kl. 09:49

Breyting á Fasteign hf. skerðir ekki endurkaupsrétt

Fulltrúar minnihluta í bæjarstjórn Sandgerðis lýstu nýlega yfir áhyggjum vegna fyrirhugaðra breytinga á eignarhaldsfélaginu Fasteign hf. Var það trú minnihluta S-lista Samfylkingar og óháðra og B-lista Framsóknarflokks að með þessum breytingum væri, eins og segir í bókun minnihluta frá bæjarstjórnarfundi í janúar: „komið í veg fyrir að sveitarfélög geti á leigutímanum keypt eignir sínar til baka og ljóst að verið er að binda hendur sveitarstjórna næstu 30 árin. Þá er hætta á þvi að á endanum verði sveitarfélög skuldbundin til að kaupa eignir sínar til baka yfir markaðsverði.“

Með þessu væru hagsmunir Fasteignar teknir framyfir hagsmuni sveitarfélagsins.

Meirihluti D-lista og K-lista reyndi þó að sefa áhyggjur þeirra á síðasta fundi og vísaði í ábendingu sem barst frá Fasteign hf. Þar er tekið skýrt fram að kaupréttur eignaraðila falli ekki niður með neinu móti nema handhafar geri eitthvað sjálfir til þess að hann falli niður. Aðrir eigendur geta ekki hlutast til um slíkt.

Það geti gerst með breyttri eignaraðild að félaginu, en kaupréttur fellur niður ef bærinn selur meira en 49% af hlut sínum í Fasteign.

Meirihluti bæjarstjórnar sagðist, í bókun sem var lögð fram  á fundinum, hafa bent fulltrúum minnihluta á þessa staðreynd á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem bókun minnihluta var lögð fram, en minnihlutinn hafi samt kosið að setja fram sína tilbúnu bókun. 
„Minnihlutinn hafði öll tök á að átta sig á samhenginu með því að lesa vel fundargögn bæjarstjórnar.“

Að lokum hvatti meirihluti bæjarstjórnar bæjarfulltrúa minnihlutans til að kynna sér kosti Fasteignar h.f. betur en þeir virðast hafa gert.

Minnihlutinn áskildi sér rétt til að svara bókun meirihluta á síðari stigum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn