BRESKIR ÞINGMENN Í SANDGERÐI
Fulltrúar Sjávarútvegsnefndar breska þingsins heimsóttu Fræðasetrið í Sandgerði sl. þriðjudag í tengslum við opinbera heimsókn hingað til lands. Þar skoðuðu þingmenn Verkamannaflokksins og Íhaldsflokksins rannsóknaraðstöðu setursins og hlýddu á fyrirlestur Guðmundar Guðmundssonar, frá Náttúruverndarstofnun, um stöðu íslenskrar rannsóknar á djúpsjávarlífi á Íslandsmiðum. Voru Bretarnir afar forvitnir, sérstaklega um fjármögnun verkefnisins og hagnýti þeirra upplýsinga sem rannsóknin aflaði. Þingmönnunum fylgdi fjölmiðlagrúppa frá BBC (nokkurs konar eðal-RÚV breskra) sem kepptist við að beina myndavélinni að furðukvikindum sjávarmiðanna og öðrum sýningargripum Fræðasetursins.