Bresk flugsveit með fjórar F-35 á Keflavíkurflugvelli
Bresk flugsveit er komin til landsins til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins. Flugsveitin samanstendur af fjórum F-35 orrustuþotum og 180 liðsmönnum. Sveitin tekur þátt í verkefninu ásamt starfsmönnum stjórnstöðva Atlantshafsbandalagsins í Uedem í Þýskalandi og á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
Framkvæmd verkefnisins verður með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlantshafsbandalagsins fyrir Ísland.
Með fyrirvara um veður er gert ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllunum á Akureyri og Egilsstöðum á tímabilinu 5. til 16. ágúst.
Flugsveitin hefur aðsetur á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli ásamt flugsveitum aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins sem sinna kafbátaeftirliti á Norður Atlantshafinu.
Varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands annast framkvæmd verkefnisins, í umboði utanríkisráðuneytisins, í samstarfi við Isavia.
Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í byrjun september.