Brenndi rusli í heimasmíðuðum ofni
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja var kallað út í morgun vegna reyks sem barst frá einbýlishúsi í Njarðvík. Þegar slökkvilið kom á staðinn var húsráðandi að brenna rusl utandyra í heimasmíðuðum ofni.
Slökkvilið mat aðstæður þannig að eldhætta væri af ofninum þar sem hann var staðsettur upp við húsið og gerðu þeir eigandanum að taka ofninn niður.