Brekkugata 4 valin Jólahús Voga
Brekkugata 4 var valin Jólahús Sveitarfélagsins Voga á fundi bæjarráðs þann 11. desember síðastliðinn. Á fundi bæjarstjórnar þann 18. desember afhenti Birgir Örn Ólafsson, forseti bæjarstjórnar þeim Gunnþórunni Gunnarsdóttur og Margeiri Jóhannessyni viðurkenningu að því tilefni, en Þau fengu auk þess bókina Örnefni og gönguleiðir í Vatnsleysustrandarhreppi eftir Sesselju G. Guðmundsdóttur.
Eftirfarandi hús fengu tilnefningar í samkeppnina um Jólahúsið í ár:
Hólagata 1
Hólagata 2b
Brekkugata 4
Aragerði 18
Mýrargata 10
Á vef Voga segir að gaman sé að sjá hve margir bæjarbúar hafi skreytt hús sín smekklega og lífgað þannig upp á skammdegið.
Texti og mynd 2: www.vogar.is VF-mynd/Þorgils