Brautskráning tæknifræðinemenda Háskóla Íslands og Keilis
Föstudaginn 23. júní fór fram brautskráning kandídata í tæknifræðinámi Háskóla Íslands og Keilis, en námið heyrir undir Rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ. Þetta er í sjötta skipti sem útskrifaðir eru nemendur í tæknifræði frá Keili til BSc-gráðu frá Háskóla Íslands. Brautskráðust í allt níu nemendur, úr mekatróník hátæknifræði og úr orku- og umhverfistæknifræði. Brautskráningin fór fram við hátíðlega athöfn í aðalbyggingu Keilis á Ásbrú og hafa nú í allt 72 nemendur útskrifast úr náminu frá upphafi.
Sverrir Guðmundsson deildarstjóri tæknifræðideildar flutti ávarp og afhenti prófskírteini ásamt Helga Þorbergssyni, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands. Arnlaugur Guðmundsson fulltrúi tæknifræðinga í stjórn Verkfræðingafélags Íslands flutti ávarp og veitti gjafir fyrir vel unnin og áhugaverð verkefni.
Ólafur Jóhannsson viðurkenningu fyrir lokaverkefni sitt í orku- og umhverfisfræði, sem var hagkvæmnismat á uppsetningu umhverfisvænna orkugjafa fyrir rekstur gistihúsa. Þá fékk Þórir Sævar Kristinsson fékk viðurkenningu fyrir lokaverkefni sitt í mektaróník hátæknifræði. Í verkefninu var hönnuð og unnin hagkvæm lausn að jaðartæki við Flutningsvaka sem er sjálfvirkur búnaður sem skrásetur hverskonar meðhöndlun sem varningur í flutningi verður fyrir, ásamt því að skrá hitastig, þrýsting og rakastig. Þórir hlaut einnig viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, með 9,01 í meðaleinkunn.
Ólöf Ögn Ólafsdóttir flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema og Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keilis flutti ræðu og stjórnaði athöfninni. Gjafir veittu Tæknifræðingafélag Íslands og HS-Orka. Tæknifræðinám Háskóla Íslands og Keilis hefst næst í ágúst, en um er að ræða hagnýtt nám sem hentar sérstaklega vel fyrir frumkvöðla og þá sem hafa áhuga á verklegri nálgun í námi og starfi.