Braut rúðu í verslun
Rúða var brotin í verslunarhúsnæði við Hafnargötu í gær. Grjóti var kastað inn um gluggan, en svo virðist sem viðkomandi hafi ekki farið inn.Þá barst eitt útkall þar sem ölvuðum manni var ekið til síns heima.
Um kl. 1 í nótt var kvartað undan hávaða frá samkvæmi í fjölbýlishúsi. Rætt var við húsráðanda sem lofaði að hafa lægra.






