Bygg
Bygg

Fréttir

Brandugla skoðaði umferðina frá vegarkantinum
Mánudagur 23. ágúst 2004 kl. 21:40

Brandugla skoðaði umferðina frá vegarkantinum

Helgi Haraldsson í Sandgerði ók fram á Branduglu í vegarkantinum á leið sinni út á Stafnes um helgina. Sat hún í mestu makindum rétt sunnan við Fuglavík / Norðurkot. Branduglan var nálægt veginum og skoðaði bílana sem óku hjá. Ekki var hún mikið fyrir það að hreyfa sig en blikkaði þó augunum, hreyfði hausinn og skoðaði okkur, sagði Helgi í samtali við Víkurfréttir.
Uglur eru sjaldséðir fuglar í náttúru Íslands þó svo vissulega hafi þær hér búsetu allt árið. Branduglur eru að mestu staðfuglar að talið er og verpa hér á láglendi aðallega í Þingeyjarsýslum, Eyjafirði og Borgarfirði. Stofninn er lítill, líklega ekki nema 100-200 varppör en 200-500 fuglar yfir vetrartímann og þá fara Branduglur víðar um landið. Kjörlendi hennar er gróurmikið mólendi og mýrar helst með trjágróðri. Þær lifa aðallega á músum og þá helst hagamúsum en einnig húsamúsum sem þær ná í við sveitabæi. Litlir vað- og spörfuglar og ungar eru einnig mikilvæg fæða Brandugla. Branduglur verpa 2-7 eggjum og varpið stendur frá miðjum maí fram í fyrri hluta júní. Branduglur er alfriðaðar, segir á vefsíðunni Íslandsvefurinn.is

Branduglur geta orðið um 36 sentimetra háar og eru þá rúmlega 400 gr. Að þyngd. Vænghaf þeirra er 0,9 til 1,1 metri.

Meðfylgjandi mynd náði Helgi af Branduglunni í vegarkantinum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn