Fréttir

Bragi byggir 24 íbúðir við Báruklöpp í Garði
Laugardagur 16. júní 2018 kl. 07:00

Bragi byggir 24 íbúðir við Báruklöpp í Garði

Byggingaverktakinn Bragi Guðmundsson ehf hefur sótt um allar lóðirnar við Báruklöpp í Garði undir byggingu 12 íbúða í raðhúsum og 12 íbúða í parhúsum.
Jafnframt fellur fyrirtækið frá fyrri umsókn um lóðir við Fjöruklöpp.

Samþykkt var á síðasta fundi skipulags- og byggingarnefndar Garðs að leggja til við bæjarráð að umsækjanda verði úthlutað lóðum númer 1-31 við Báruklöpp. Lóðirnar við Báruklöpp verða þó líklega ekki byggingarhæfar fyrr en seinni hluta ársins 2018, segir í gögnum nefndarinnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024