Bræla tefur björgun Guðrúnar Gísladóttur

Ásgeir sagði að í dag hefði staðið til að ljúka þeim þætti að koma sérstökum flotpylsum fyrir við Guðrúnu sem liggur á 40 metra dýpi. Tvær af þremur væru komnar á sinn stað en í þessum netum, sem væru gerð úr íslensku ofurtói, væru floteiningar sem gefa myndu 400 tonna lyftikraft þegar að því kæmi að lyfta Guðrúnu af hafsbotni. Hann sagði að tveir stórir tankar sem búið var að sökkva að skipinu til að rétta það við hefðu verið teknir upp aftur er veður versnuðu til þess að björgunarmenn þyrftu ekki að eiga á hættu að straumaköst hrifu þá með sér. Um leið og lægði og veður gerðist gott og stöðugt á ný yrði þeim sökkt aftur að skipinu.
„Aðferðafræðin við þetta og tæknin sem lagt var upp með virðist ætla að virka. Hið eina sem þarf er gott veður, við erum upp á náð og miskunn veðurguðanna komnir," sagði Ásgeir Logi.