Fréttir

Bráðinn málmur bræddi slöngur og rafmagnsbúnað í kísilverinu
Mánudagur 17. júlí 2017 kl. 12:48

Bráðinn málmur bræddi slöngur og rafmagnsbúnað í kísilverinu

Bráðinn málmur lenti á gólfi kísilverksmiðju United Silicon í nótt þegar starfsmenn verksmiðjunnar unnu við töppun og útsteypingu kísilmálms, með þeim afleiðingum að talsverður reykur gaus upp í verksmiðjubyggingunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá United Silicon.

Þá segir einnig að starfsmenn verksmiðjunnar hafi brugðist hárrétt við aðstæðum, þeir hafi slökkt á ofni verksmiðjunnar, rýmt verksmiðjubygginguna og óskað aðstoðar slökkviliðs. Ekki hafi þó komið til aðstoðar slökkviliðs þar sem starfsmenn hafi sjálfir náð tökum á ástandinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í tilkynningu United Silicon segir að ekki hafi verið um eld að ræða heldur hafi  slöngur og rafmagnsbúnaður bráðnað af völdum hita frá málminum. Menn frá slökkviliði og lögreglu voru á staðnum þar til ástand verksmiðjunnar var tryggt.

Enginn af starfsmönnum verksmiðjunnar hlaut skaða af, en skemmdir hafa enn ekki verið metnar og því ekki hægt að segja til um hversu miklar þær hafi verið.