Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Fréttir

Bráðabirgðahúsnæði nýs skóla í Innri-Njarðvík tekið að rísa
Húsnæðið samanstendur af forsniðnum einingum á stálgrind frá Slóveníu og keypt voru af Hýsi eftir útboð í vor. Mynd af vef Reykjanesbæjar.
Föstudagur 28. júlí 2017 kl. 20:52

Bráðabirgðahúsnæði nýs skóla í Innri-Njarðvík tekið að rísa

Fyrstu framkvæmdir við nýjan skóla, sem fullbyggður mun bæði hýsa leik- og grunnskóla Dalshverfis í Innri Njarðvík, eru hafnar. Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar og þar má sjá myndir frá framkvæmdum.
 
Nú í haust mun kennsla yngstu árganga hverfisins hefjast í 620 fermetra bráðabirgðahúsnæði sem tekið er að rísa á skólalóðinni.
 
Húsnæðið samanstendur af forsniðnum einingum á stálgrind frá Slóveníu og keypt voru af Hýsi eftir útboð í vor.
 
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við sjálft skólahúsnæðið hefjist eftir áramót þegar hönnun er lokið og útboð hefur farið fram. 
 
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept karl
Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25