Bygg
Bygg

Fréttir

Bráðabirgðabjörgunarskip til Grindavíkur
Föstudagur 7. desember 2007 kl. 16:00

Bráðabirgðabjörgunarskip til Grindavíkur

Björgunarskipið Einar Sigurjónsson frá Hafnarfirði mun vera til taks í Grindavík á meðan Oddur V Gíslason er í viðgerð. Tjón varð á Oddi við björgunarstörf við Grindavíkurhöfn í morgun þar sem dráttarpolli rifnaði af skipinu í hamagangnum sem fylgdi því að losa síldarskipið Súluna EA af strandstað í morgun.

Björgunaraðgerðir tókust annars mjög vel þar sem skipið losnaði og var komið upp að bryggju. Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík brást hratt við þegar Súlan strandaði á leið sinni frá Grindavík til Neskaupsstaðar eftir að hafa skilað af sér síldarnót, en skipið var með fullfermi af síld, um 900 tonn.

Frá því að útkall rauður barst, rétt fyrir klukkan tíu í morgun liðu einungis um 5 mínútur þar til að Oddur var lagður af stað, og að liðnum 15 mínútum var allt tiltækt lið björgunarsveitarinnar komið á vettvang ásamt lóðsbátnum Villa og hafnarstarfsmönnum.

Kafari kannaði skemmdir á Súlunni fyrir skemmstu en ekki hefur verið gefið út um umfang þeirra.

Heimild: www.grindavik.is

VF-mynd/elg - Frá strandstað í morgun
Bílakjarninn
Bílakjarninn