Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Botntroll verði bannað innan 12 mílna
Miðvikudagur 30. september 2009 kl. 12:04

Botntroll verði bannað innan 12 mílna


Reykjanes, félag smábátaeigenda á Reykjanesi ítrekar fyrri samþykktir um lokun svæðis fyrir botntrolli vestur úr Sandgerði og suður af Grindavík.  Reykjanes vill banna veiðar með botntrolli innan 12 sjómílna, ennfremur að gulldepluveiðar verði bannaðar þar sem hún sé mikilvæg fæða fyrir ufsa og karfa.  Þá vill Reykjanes að loðnuveiðar verði takmarkaðar vegna mikilvægis hennar sem fæðu.

Þetta er á meðal þess sem fram kom á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Grindavík síðastliðinn fimmtudag. Alls voru samþykktar 12 tillögur á fundinum, sem var fjölmennur.

Reykjanes mótmælir öllum hugmyndum um afnám sjómannaafsláttar.  Skorað er á samgönguráðherra að breyta reglugerð um útivistartíma báta þar sem einn maður er um borð.
Á fundinum voru viðruð ýmis sjónarmið á strandveiðum.  Reykjanes vill að veiðitímabil strandveiða verði mismunandi, skipt í  tvo mánuði t.d. suðursvæði væri í maí og júní, einnig að bátar sem leigt hafa frá sér kvóta fái ekki strandveiðileyfi.  Þá var samþykkt að óska eftir því að Landsamband smábátaeigenda  standi fyrir nákvæmri úttekt á því hverjir nýttu sér strandveiðar,  t.d. nýliðar, frístundabændur eða útgerðir smábáta með eða án kvóta.

Snarpar umræður urðu um ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og ákvörðun um heildarafla.  Fundurinn mótmælti harðlega niðurskurði á ýsu og skorar á sjávarútvegsráðherra að auka aflamark í henni nú þegar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024