HSS
HSS

Fréttir

Botndýr gætu orðið dýr
Föstudagur 13. desember 2024 kl. 06:27

Botndýr gætu orðið dýr

Lífeyrisskuldbindingum starfsmanna verkefnisins „Botndýr á Íslandsmiðum“ frá árunum 1992 til 2013 er nú kastað milli fjármála- og efnahagsráðuneytis og Suðurnesjabæjar. Unnið var að verkefninu í Sandgerði á sínum tíma. Lífeyrisskuldbindingarnar hafa legið hjá sveitarfélaginu en Sandgerðisbær og síðar Suðurnesjabær hafa unnið að því að ríkið samþykki að taka yfir skuldbindingarnar, enda var starfsemin á höndum ríkisins og stofnana þess á sínum tíma en ekki sveitarfélagsins.

Í erindi frá fjármála- og efnahagsráðuneyti varðandi erindi frá Suðurnesjabæ um að ríkið taki yfir lífeyrisskuldbindingar starfsmanna sem unnu að botndýrarannsóknum á árunum 1992-2013 kemur fram að vilji sé til að ríkið taki á sig allt að 50% af heildar skuldbindingu vegna málsins, en skuldbindingin stendur nú í 150 milljónum.

Í afgreiðslu bæjarráðs Suðurnesjabæjar er samþykkt samhljóða að fela bæjarstjóra að leita frekari gagna sem geti leitt til þess að ríkið taki á sig meiri hluta skuldbindinganna en fram kemur í erindi ráðuneytisins. Ef það gengur ekki eftir samþykkir bæjarráð samhljóða að fallast á að ríkið taki á sig 50% af heildarskuldbindingu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn