Kaffi Duus Jólahlaðborð
Kaffi Duus Jólahlaðborð

Fréttir

Börnum í Sandgerði boðið vinnunámskeið og kofabyggð
Mánudagur 28. júní 2004 kl. 22:55

Börnum í Sandgerði boðið vinnunámskeið og kofabyggð

Vinnuskóli Sandgerðisbæjar stendur fyrir vinnunámskeiði fyrir krakka fædda 1991. Námskeiðið hefst mánudaginn 5. júlí og stendur í tvær vikur, mánudaga til föstudaga kl. 8:30-12:00. Þátttakendur fá að prufa ýmis verkefni sem vinnuskólinn fæst við og auk þess verður m.a. farið í fjöruferð, sundlaugasprell og fleira. Þátttakendur verða á launum þá daga sem þeir eru við vinnu.

Kofabyggð í Sandgerði
Kofabyggð fer af stað fimmtudaginn 8. júlí. Vinnutíminn er mánudaga til fimmtudaga frá kl. 13:00-16:00. Opið er fyrir börn fædd 1992-1997. Lokadagur verður miðvikudaginn 28. júlí. Innritun fer fram í Íþróttamiðstöðinni og greiðist þátttökugjald, kr. 1.200,- við skráningu. Athygli er vakin á því að Kofabyggð er ekki hugsuð sem gæsla fyrir börnin. Leiðbeinendur eru þær Hjördís Hrund Reynisdóttir og Valgerður Guðbjörnsdóttir.
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100