Börn kórfélaga skemmta
- kórkvöld Kórs Keflavíkurkirkju í Kirkjulundi
Kórkvöld Kórs Keflavíkurkirkju verður haldið í Kirkjulundi annað kvöld, þriðjudaginn 2. febrúar kl. 20:00 en að þessu sinni verða börn kórfélaga í sviðsljósinu en þar býr margt hæfileikaríkt fólk.
Fram koma: Sigríður og Sólborg Guðbrandsdætur, Davíð Sveinsson, Laufey Kristín Marinósdóttir, Þórdís Birna og Ester Borgarsdætur.
Kórkvöldin hafa mælst vel fyrir en þau eru liður í fjáröflun kórsins sem fer til Ítalíu í sumar.
Heitt verður á könnunni og eitthvað með því og miðaverð er einungis kr. 500.