Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 17. október 2003 kl. 22:58

Börn eru ekki hætt að lesa

Börn eru ekki hætt að lesa - þau eru bara að lesa margt fleira en bækur.  Þetta kom fram í fyrirlestri Þorbjarnar Broddasonar prófessors við félagsvísindadeild Háskóla Íslands sem fluttur var á bókmenntakvöldi Bókasafns Reykjanesbæjar miðvikudaginn 15. október.
Yfirskrift bókmenntakvöldsins var "Börn og læsi" í tilefni af lestrarátaki Reykjanesbæjar og því að 10 ár voru liðin frá því að Bókasafn Reykjanesbæjar flutti í Kjarna þann 8. október.
Þorbjörn hefur rannsakað lestrarvenjur barna og unglinga á undanförnum áratugum sem hafa mikið breyst og kom m.a. fram í máli hans að stelpur lesa meira en strákar, yngri börn lesa meira en þau eldri og strákar nota tölvur meira en stelpur. Sífellt stærri hluti barna og unglinga horfir á sjónvarp og þau eiga mikil samskipti á netinu. Bókin stendur höllum fæti og sífellt fækkar bókaormum. Að sögn Þorbjarnar eru börn þó sífellt að lesa, hvort sem það er texti í sjónvarpi eða texti á tölvuskjá og fram hjá því megi ekki horfa. Stór hluti barna á aldrinum 10 - 15 ára á í dag sjónvarp í herberginu sínu, fer á Netið reglulega og á þar samskipti við þröngan hóp notenda, notar tölvupóst daglega og á sína eigin heimasíðu.
Guðbjörg Sveinsdóttir sagði frá reynslusinni af uppeldi bókaorma sem hófst strax við brjóstagjöf og stendur í raun enn. Hún lagði áherslu á að fjölskyldan ætti notalega kvöldstund með góðri bók fyrir svefninn og að einnig mætti koma bókum fyrir á fleiri stöðum s.s. í bílnum, í ferðalög og sumarbústaðinn. Guðbjörg taldi að lesturinn hafi verið góður undirbúningur fyrir lestrarkennslu þegar skólaganga barnanna byrjaði enda orðaforði ríkur og viðhorf til bókarinnar jákvætt. Að loknu erindi Guðbjarnar las dóttir hennar, Fjóla Oddgeirsdóttir 13 ára, fyrir áheyrendur úr einni af uppáhaldsbók sinni.
Að lokum las Andri Snær Magnason úr verkum sínum þ.á.m. barnabókinni Sagan af bláa hnettinum sem hlaut bókmenntaverðlaun. Andri Snær sagði frá tilurð verka sinna og tilgangi þeirra en barnabók hans var m.a. skrifuð undir áhrifum frá íslenskum þjóðlögum sem varðveist hafa í munnlegri geymd í 300 ár og teflonhúðaðri Wok pönnu sem hann fékk í jólagjöf frá ömmu sinni . Í anda þess vonar Andri Snær að Sagan af bláa hnettinum verði endurútgefin í 200 ár. Í bláa hnettinum leitast Andri Snær við að bregða upp mynd af öll því sem er fallegt og gott. Hann hefur skapað ævintýraheim þar sem enginn er alvondur eða algóður og verða börnin sjálf að túlka söguna.
Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Stefanía Helga Stefánsdóttir frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar léku fyrir gesti en þær eru að undirbúa sig fyrir píanókeppni sem haldin verður í nóvember. Vefur Reykjanesbæjar greinir frá þessu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn