Fréttir

Borgari stöðvaði ölvaðan ökumann í Grindavík
Föstudagur 2. október 2015 kl. 13:48

Borgari stöðvaði ölvaðan ökumann í Grindavík

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni tvo ökumenn sem grunaðir voru um að vera ölvaðir undir stýri. Í  öðru tilvikinu var ökumaðurinn stöðvaður af borgara í Grindavík og handtók lögregla manninn skömmu síðar. 

Báðir voru færðir á lögreglustöð og sleppt að lokinni skýrslutöku.
 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024