Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Borgaraleg handtaka í Njarðvík
Þriðjudagur 16. maí 2017 kl. 07:00

Borgaraleg handtaka í Njarðvík

Ökumaður sem ók aftan á kyrrstæða bifreið í Njarðvík í síðustu viku ætlaði að aka í burtu enda grunaður um ölvun við akstur. Eigandi kyrrstæðu bifreiðarinnar horfði á atvikið og ræddi við ökumanninn. Hann vildi sem minnst tjá sig og lá greinilega á að komast í burtu.

Af því varð þó ekki því tveir nærstaddir menn komu eigandanum til aðstoðar, tóku ökumanninn út úr bílnum og héldu honum þar til lögreglumenn á Suðurnesjum komu á vettvang. Þeir handtóku ökuþórinn og færðu hann á lögreglustöð.

Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af bíl hans því hann var ótryggður.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024