Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Borgaði 97.500 kr. í sekt fyrir hraðakstur
Föstudagur 9. júní 2017 kl. 11:24

Borgaði 97.500 kr. í sekt fyrir hraðakstur

- Nokkrir sektaðir fyrir að aka á nagladekkjum

Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum kærði fyrir of hraðan akstur í vikunni mátti reiða af hendi 97.500 krónur í sekt. Þetta var erlendur ferðamaður og mældist bifreið hans á 151 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
Auk hans voru tólf ökumenn kærðir fyrir hraðakstur.
Þá hafði lögregla afskipti af fjórum ökumönnum vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra var með kannabis í fórum sínum. Loks voru nokkrir sektaðir fyrir að aka á nagladekkjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024