Bygg
Bygg

Fréttir

Bólusetning flugliða - „Mun auka áhuga og traust fólks á því að ferðast til Íslands“
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 1. mars 2021 kl. 11:43

Bólusetning flugliða - „Mun auka áhuga og traust fólks á því að ferðast til Íslands“

„Stjórnvöld verða að bregðast hratt og örugglega við þessari eðlilegu kröfu um bólusetningu flugliða. Flugliðar eru undanþegnir ýmsum sóttvarnarráðstöfum af þeim sökum. Þá mun það eflaust auka áhuga og traust fólks á því að ferðast til Íslands viti það af bólusettum flugliðum og flugvallastarfsmönnum,“ segir Vilhjálmur Árnson, þingmaður í Suðurkjördæmi en Morgunblaðið greindi frá því að ekki hafi fengist heimildir fyrir því að bólusetja flugliða og annað starfsfólk flugfélaga sem á í samskiptum við flugfarþega og fólk erlendis, starfa sinna vegna. Vilhjálmur segir að þetta geti haft veruleg áhrif á ferðaþjónustuna og umsvif í flugstöðinni og þar af leiðandi atvinnustigið á Suðurnesjum. Þannig geti þetta haft veruleg áhrif í endurheimtun starfa sem hafa legið niðri vegna ástandsins.

Icelanda­ir hef­ur fengið synj­un hjá embætti land­lækn­is og heil­brigðisráðuneyt­inu við ósk um bólu­setn­ingu fram­lín­u­starfs­fólks síns. Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Icelandair segir við mbl.is að starfsfólk sem vinnur við að halda samgöngum við landið uppi og fari út fyrir landamærin sé lengur í snertingu við farþega en margir aðrir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Hann áætl­ar að um sé að ræða eitt­hvað á þriðja hundrað manns. Full­trúar stjórn­valda hafa sagt að flugliðar væru ekki í for­gangs­hópi, sam­kvæmt reglu­gerð ráðuneyt­is­ins.