Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bókin Minimalískur lífstíll reyndist mikill áhrifavaldur
Föstudagur 19. ágúst 2016 kl. 06:00

Bókin Minimalískur lífstíll reyndist mikill áhrifavaldur

-Helga Eiríksdóttir, kennari í Akurskóla, er lesandi vikunnar

Hvaða bók ertu að lesa núna?
Ég er að lesa ferðabókina Jökulsárgljúfur: Dettifoss, Ásbyrgi og allt þar á milli. Ég er að undirbúa mig fyrir göngu um Jökulsárgljúfur. Eftir gönguna ætla ég svo að demba mér í bókina Konan í blokkinni eftir Jónínu Leósdóttur.

Hver er þín eftirlætis bók?
Ég er að fara að lesa í annað sinn bókina Me before you (e. Ég fremur en þú) eftir Jojo Moyes, einnig vil ég nefna bókina Góða nótt yndið mitt eftir Dorothy Koomson en það eru margar góðar eftir hana. Ég er hrifin af sögum með góðum fléttum sem grípa mig strax.

Hver er eftirlætis höfundurinn þinn?
Dorothy Koomson, Arnaldur Indriðason, Yrsa og Jodi Picoult sem dæmi.

Hvernig bækur lestu helst?
Skáldsögur og íslenskar sakamálasögur.

Hvaða bók hefur haft mest áhrif á þig?
Minimalískur lífstíll eftir Áslaugu Guðrúnardóttur. Ég er búin að vera að taka til síðan ég keypti bókina og henda drasli sem ég hef engin not fyrir.

Hvaða bók ættu allir að lesa?
Mýrina eftir Arnald Indriðason.

Hvar finnst þér best að lesa?
Í hægindastólnum mínum heima hjá mér.

Hvaða bækur standa upp úr sem þú vilt mæla með?
Bækurnar eftir Dorothy Koomson og bókin Luktar dyr eftir B.A Paris.

Við þökkum Helgu kærlega fyrir og minnum á heimasíðu Bókasafns Reykjanesbæjar  þar sem hægt er að mæla með Lesanda vikunnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024