Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bókagangan hafin
Þriðjudagur 4. október 2011 kl. 09:22

Bókagangan hafin

Í gær voru bækur ræstar út frá Bókasafni Reykjanesbæjar í boðgöngu í tilefni af heilsu- og forvarnarviku. Nokkrir íbúar úr íþrótta- og menningarlífinu, sem þekkt er fyrir hreysti og heilsueflingu héldu af stað út í mannhafið með bók í hönd.

Eftir lestur bókarinnar verður hún látin ganga til annars íbúa, ættingja, vinar, kunningja eða nágranna sem það vill deila bókinni með og þannig gengur hún frá lesanda til lesanda út vikuna. Ferðalag bókanna verður skráð á þar til gert eyðublað fremst í hverri bók.

Þau Guðmundur Steinarsson knattspyrnumaður, Ólöf Edda Eðvarðsdóttir sundkona, teakwondo mæðginin Kolbrún Guðjónsdóttir og Jón Steinar Brynjarsson, Sossa myndlistarkona og Arnór B. Vilbergsson organisti ræstu gönguna á Bókasafni Reykjanesbæjar í gær.




Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024