Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Boðið upp á ýmiskonar fræðslu í tengslum við Sólseturshátíð
Fimmtudagur 4. ágúst 2005 kl. 13:56

Boðið upp á ýmiskonar fræðslu í tengslum við Sólseturshátíð

Í tengslum við Sólseturshátíðina á Garðskaga þann 13. og 14.ágúst verður boðið uppá göngur og fræðslu um ýmislegt tengt svæðinu.

Laugardaginn 13. ágúst klukkan 11:00 verður menningar- og sögutengd ganga um Garð.  Gangan hefst við íþróttahúsið klukkan 11:00. Gengið verður að fornmannaleiði, Útskálakirkju, hinum forna Skagagarði, Skálareyki og fiskihjöllum. Létt ganga og fróðleikur um sögu Garðs undir stjórn leiðsögumanna á Reykjanesi.

Sama dag klukkan 14:00 verður menningar- og sögutengd fræðsla fyrir börn og fullorðna í og við Byggðasafnið í Garðinum. Fræðsla um fugla, gamla vitann, skipströndin, Garðskagavita og skoðunarferð um Byggðasafnið. Fræðslan hefst við fuglaskiltin, sem eru við Garðaskagavita klukkan 14:00. Leiðsögumenn á Reykjanesi sjá um fræðsluna.

Ýmis verkefni fyrir börnin svo sem fuglakeppni og þá verða litlir bátar til að fleyta í fjörunni.

Sunnudaginn 14. ágúst klukkan 11:00 verður menningar -og sögutengd ganga frá Leirunni í Garði að Garðskagavita. Um þriggja tíma ganga um 5-6 km meðfram ströndinni. Fræðsla um minjar og staðhætti undir stjórn leiðsögumanna á Reykjanesi.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024