Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Boðað til samstöðufundar
Mánudagur 24. ágúst 2009 kl. 09:28

Boðað til samstöðufundar


Samstöðuhópur um að halda HS Orku í opinberri eigu, hefur boðað til fundar í Saltfisksetrinu í Grindavík á morgun, þriðjudaginn 25. ágúst kl. 18:00.
Með fundinum vill hópurinn heita á ríkisstjórn Íslands að standa vörð um auðlindir landsmanna með langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi, það því er segir í fundarboði.

Á fundinum mun Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, skýra hvernig málið horfir við sveitarfélaginu og þeir Guðbrandur Einarsson, fulltrúi Samfylkingar í stjórn HS veitna, og Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í stjórn OR, fjalla um hvernig áform um einkavæðingu HS Orku líta út frá þeirra sjónarhóli.

„Samstöðuhópur um að halda HS orku í opinberri eigu vill með fundi sínum heita á ríkisstjórn Íslands að standa vörð um auðlindir landsmanna með langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Árið 1974 var Hitaveita Suðurnesja stofnuð af sveitarfélögunum á Suðurnesjum og ríkinu. Allar götur síðan hefur fyrirtækið verið hornsteinn í samfélagi Suðurnesjamanna, séð fyrir yl og birtu, skapað störf og arð. Verði úr kaupum Magma Energy á hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS orku á grundvelli fyrirliggjandi tilboðs væri verðmætum í almannaeigu fórnað fyrir óljósan ávinning einhverra aðila. Framsal auðlindarinnar, hvort heldur sem er í 65 eða 130 ár, er í reynd í varanlegt þar sem slíkum nýtingaráformum fylgir sú augljósa áhætta  að auðlindin verði uppurin áður en framsalstíminn er liðinn,“ segir í tilkynningu með fundarboði hópsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024