Boðað til framkvæmdaþings í Reykjanesbæ
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, boðar til framkvæmdaþings í Reykjanesbæ fimmtudaginn 10. mars 2005.
Á þinginu verða kynntar helstu verkframkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á árinu 2005 í landi Reykjanesbæjar og á Keflavíkurflugvelli. Frá þessu er greint á vef Reykjanesbæjar í dag.
Kynntar verða framkvæmdir á vegum Reykjanesbæjar, Reykjaneshafnar og Fasteignar hf. auk þess sem fjallað verður um framkvæmdir vegna alþjóðaflugvallar á Keflavíkurflugvelli, framkvæmdir hjá Varnarliði, Hitaveitu Suðurnesja og byggingarframkvæmdir í Tjarnahverfi og víðar.
Þá hefur helstu verktökum á svæðinu verði boðið að kynna eigin framkvæmdir.
Þingið verður haldið á veitingahúsinu Ránni við Hafnargötu kl. 16 - 19:00 og er öllum opið.