Föstudagur 26. september 2003 kl. 11:01
Boðað til aukafundar í bæjarstjórn Sandgerðis
Boðað verður til aukafundar í Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar í dag eða á morgun vegna dóms hæstaréttar frá í gær þar sem Sandgerðisbær var dæmdur til að endurgreiða Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. rúmar 37 milljónir króna vegna ofreiknaðra fasteignaskatta. Ástæða þessa má rekja til þess að álagningarstofn fasteignaskatts flugstöðvarinnar var fyrir mistök Fasteignamats ríkisins ákvarðaður 36,8% of hár frá árinu 1989.
Reynir Sveinsson formaður bæjarráðs Sandgerðisbæjar sagði í samtali við Víkurfréttir menn væru ósáttir við dóminn og að aukafundur í bæjarstjórn yrði boðaður í dag eða á morgun. „Þar munum við ræða hvað við gerum næst í þessu máli. Í okkar huga liggur ábyrgðin alfarið hjá Fasteignamati ríkisins í þessu máli.“ Í fjárhagsáætlun fyrir þetta ár var gert ráð fyrir þessum tekjum og segir Reynir að tekið verði á þessu máli. „Auðvitað kemur þetta sér illa, en við munum leysa þetta mál. Þessi dómur er ákveðin vonbrigði fyrir okkur en það er ekkert nýtt að hæstiréttur snúi við dómum héraðsdóms. Maður verður bara að taka því,“ sagði Reynir í samtali við Víkurfréttir.