Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Blómamarkaður við Ytri-Njarðvíkurkirkju
Mánudagur 28. maí 2018 kl. 06:00

Blómamarkaður við Ytri-Njarðvíkurkirkju

Blómamarkaður Lionsklúbbsins Æsu verður við Ytri-Njarðvíkurkirkju dagana 29., 30. og 31. maí frá kl. 16 til 19. Ágóði af blómasölunni rennur óskiptur til líknarmála. Heitt verður á könnunni alla dagana.
Þetta er þriðja árið sem Blómamarkaðurinn er í höndum Lionsklúbbsins Æsu en hann var áður, sem kunnugt er, á vegum Systrafélags Ytri-Njarðvíkurkirkju. Lionsklúbburinn Æsa er kvennaklúbbur, stofnaður árið 1997, en félagskonur höfðu þá starfað undir merkjum Lionessuklúbbs Njarðvíkur frá árinu 1987. Klúbburinn hefur á þessum 31 ári styrkt líknar- og menningarmál, einkum hér í heimabyggð en einnig stutt við verkefni Lions á alþjóðavísu.

Lions er stærsta alþjóðlega þjónustuhreyfing heims, stofnuð árið 1917, fyrir réttum hundrað árum. Félagafjöldi er um 1,4 milljónir, klúbbarnir um 46.000 talsins í yfir 200 löndum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lionsfélagarnir í Æsu eru í afmælisskapi, verða með falleg og góð blóm á markaðnum og hlakka til að taka á móti Suðurnesjamönnum í blómahugleiðingum.