Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Blóðsöfnun í Reykjanesbæ í dag
Miðvikudagur 19. desember 2007 kl. 03:00

Blóðsöfnun í Reykjanesbæ í dag

Blóðbankabíllinn verður við KFC í Reykjanesbæ í dag, miðvikudaginn 19. des., frá kl. 10:00-17:00. Allir velkomnir.

Til að mæta þörfum samfélagsins, þarf Blóðbankinn um 16.000 blóðgjafa á ári eða 70 blóðgjafa á dag. Haft er samband við 8 -10.000 virka blóðgjafa á ári hverju og gefa þeir u. þ. b. 15.000 blóðgjafir.

Traust og örugg blóðgjöf byggir á heilbrigðum blóðgjöfum. Gott heilsufar er því forsenda blóðgjafar og mikilvægt að kynna sér reglur sem gilda varðandi blóðgjafir . Ef þú ert á aldrinum 18 - 60 ára, yfir 50 kg., heilsuhraust/ur og lyfjalaus getur þú gerst blóðgjafi. Virkir blóðgjafar geta gefið blóð til 65 ára aldurs. 

 Í hvert skipti sem þú kemur til að gefa blóð þarftu að framvísa persónuskilríkjum með mynd. Þú þarft að fylla út heilsufarsskýrslu sem þú undirskrifar og samþykkir þar með að allar upplýsingarnar sem þú gefur upp séu réttar. Jafnframt samþykkir þú að gefa blóð.

Hjúkrunarfræðingur fer yfir heilsufarsskýrsluna með þér og mælir blóðþrýsting og púls. Heilsufarsskýrslan er mikilvægur liður í öryggisneti Blóðbankans og á að tryggja öryggi bæði blóðgjafa og blóðþega. Starfsfólk Blóðbankans er bundið þagnarskyldu svo farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þér er velkomið að spyrja starfsfólk Blóðbankans spurninga hvenær sem er í blóðgjafarferlinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024