Fréttir

Blóðbankinn þarf fleiri eins og Ólaf Helga
Ólafur hefur gefið blóð reglulega frá árinu 1972. Líklega er magnið samtals um 90 lítrar.
Mánudagur 20. mars 2017 kl. 14:32

Blóðbankinn þarf fleiri eins og Ólaf Helga

- Gaf blóð í 200. sinn í dag - Enginn hefur gefið eins oft hér á landi

Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, gaf blóð í Blóðbankanum í dag í tvöhundruðasta sinn og var þetta í fyrsta sinn sem blóðgjafi hér á landi nær þeim áfanga. Ólafur var heiðraður af Blóðbankanum eftir blóðgjöfina. Í gegnum tíðina hefur Ólafur samtals gefið um 90 lítra af blóði og hjálpað á milli tvö og þrjú hundruð manns með gjöfum sínum.

Á vef Blóðbankans er greint frá því að Ólafur hafi fyrst gefið blóð árið 1972 þegar hann var 18 ára gamall og var á síðasta ári í námi sínu við Menntaskólann í Reykjavík. Síðan hefur hann gefið blóð reglulega og oft haft mikið fyrir því að komast í blóðgjöf. Ólafur var um tíma blóðflögugjafi og kom þá reglulega í blóðskiljuvél. Eftir það hefur ferillinn verið nokkuð samfelldur og það þrátt fyrir 18 ára búsetu á Ísafirði, en allar Reykjavíkurferðir sínar skipulagði Ólafur þannig að nauðsynleg erindi, bæði vegna starfa og setu í bæjarstjórn og bæjarráði, fellu saman við blóðgjöf nokkurn veginn á þriggja mánaða fresti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hver blóðgjöf tekur að meðaltali um 30 mínútur og því hefur Ólafur varið að minnsta kosti 100 klukkustundum í Blóðbankanum.

Ólafur var kosinn í stjórn Blóðgjafafélags Íslands árið 2002 og varð formaður þess árið 2004 og gegndi því hlutverki í tíu ár, til ársins 2014. „Auk þess að vera einn af okkar dyggustu blóðgjöfum hafa fáir komist með tærnar þar sem Ólafur hefur hælana varðandi öflun blóðgjafa. Meðan Ólafur bjó á Selfossi virkjaði hann fjöldann allan af fólki til að verða blóðgjafar og voru oft slegin met við blóðsöfnun þar. Eftir að Ólafur svo fluttist á Suðurnesin hafa þau styrkst og eflst sem blóðsöfnunarstaður og er nú svo komið að fjöldi þeirra sem koma í bílinn í Reykjanesbæ er oft meiri en á Selfossi. Svona getur einn einstaklingur skipt miklu máli þegar blóðsöfnun er annars vegar. Við þurfum fleiri Ólafa,“ segir á vef Blóðbankans.