Blíða í kortunum
Hægviðri eða hafgola og skýjað með köflum. Sunnan 3-8 síðdegis á morgun. Hiti 10 til 16 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Suðvestan 3-10 m/s og dálítil væta norðan- og vestanlands, en þurrt a mestu suðaustantil. Hiti 7 til 14 stig.
Á sunnudag:
Þykknar upp með vaxandi suðaustanátt suðvestanlands, 10-15 m/s og fer að rigna undir kvöld. Fremur hæg suðlæg átt norðan- og austanlands og bjart fram eftir degi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast norðantil.
Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir suðaustlæga átt með rigningu eða skúrum, en þurrt og bjart með köflum og áfram hlýtt um norðanvert landið.