Blettaskoðun á húð á Suðurnesjum
Krabbameinsfélag Suðurnesja og Helga Hrönn Þórhallsdóttir húðsjúkdómalæknir bjóða þeim sem áhyggjur hafa af blettum á húð að koma til blettaskoðunar miðvikudaginn 9. maí. Metið verður hvort ástæða er til frekari aðgerða og er skoðunin án endurgjalds. Þeir sem vilja nýta sér þetta þurfa að panta tíma í síma 4216363 mánudaginn 7. maí milli kl. 16-18.
Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mjög hér á landi á síðari árum. Mikilvægt er því að fólk láti skoða bletti, ef fram koma breytingar svo sem stækkun, breytingar á lögun og lit eða sár myndast.
Tíðni húðkrabbameins hefur aukist mjög hér á landi á síðari árum. Mikilvægt er því að fólk láti skoða bletti, ef fram koma breytingar svo sem stækkun, breytingar á lögun og lit eða sár myndast.