Blettaskoðun á húð
Krabbameinsfélag Suðurnesja og Helga Hrönn Þórhallsdóttir húðsjúkdómalæknir bjóða þeim sem hafa áhyggjur af blettum á húð að koma í blettaskoðun á læknignastofuna að Hringbraut 99 í Keflavík sunnudaginn 4. nóvember Metið verður hvort ástæða er til frekari aðgerðar. Skoðunin er án endurgjalds.
Þeir sem vilja nýta sér þetta þurfa að panta tíma í síma 4217575.
Þessi þjónusta hefur verið veitt í mörg undanfarin ár á Suðurnesjum en Krabbameinsfélag Íslands og Félag Húðlækna hafa staðið fyrir henni í Reykjavík.
Góð reynsla er af þessu starfi og mörg dæmi um að mjög varhugaverðar breytingar hafi fundist.
Tíðni húðkrabbameins hefur aukist hér á landi síðari ár eins og kunnugt er. Mikilvægt er því að fólk láti skoða bletti hjá lækni ef fram koma breytingar svo sem að þeir stækki, breytist að lögun og lit og sár myndist sem gróa illa.
Á heilsugæslustöðvum og í apótekum liggja frammi fræðslurit um sólböð, sólvarnir og húðkrabbamein.