Blautur dagur
Austan 10-20 og rigning eða slydda við Faxaflóa í dag. Norðaustan 5-13 og rigning eða slydda með köflum síðdegis og á morgun. Hiti 1 til 6 stig.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 8-15 og rigning eða slydda. Norðaustan 5-10 og rigning með köflum í dag en norðvestlægari í kvöld og á morgun. Hiti 1 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 m/s á N-verðu landinu, snjókoma eða slydda með köflum og hiti um frostmark. Heldur hægari breytileg átt S-til, rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig.
Á miðvikudag:
Norðan og norðaustan 5-13 m/s. Él N-til og vægt frost, en hægari syðst og skúrir eða él og hiti 0 til 5 stig.
Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti):
Norðan 5-13 m/s. Él N-lands og syðst, annars úrkomulaust. Frost 0 til 7 stig, mest í innsveitum fyrir norðan, en frostlaust með suðurströndina.
Á föstudag:
Fremur hæg vestlæg átt og víða bjartviðri, en skýjað og jafnvel rigning með V-ströndinni. Frostlaust vestanlands.
Á laugardag:
Útlit fyrir vestanátt með rigningu eða slyddu, einkum um landið vestanvert. Hlýnar um tíma.
Á sunnudag:
Norðan átt með éljagangi og frosti um mest allt land.