Blái herinn og SEEDS sameinast í orustu

Tómas Knútsson, kafari og framkvæmdasjtóri Bláa hersins og um 20 félagar úr sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS tóku hraustlega á því á svæðinu í nágrenni við Brimketilinn í gær.
Samtökin SEEDS eða ,,SEEDS beyond borders" senda hópa af ungu fólki um allan  heim til þess að hjálpa heimamönnum að taka á umhverfismálum.
Hópurinn dvelur nú á ,,Vellinum" og hefur Tómas Knútsson framkvæmdastjóri Bláa  hersins umsjón með verkefnum og skoðunarferðum.
Jóna Kristín bæjarstjóri bauð hópnum í Bláa Lónið sl. sunnudag og launaði hópurinn  fyrir sig með því að fylla tvo stóra ruslagáma.
Hópurinn kom svo við og  skoðaði Saltfisksetrið.
Brimketil og svæðið í nágrenni hans er mjög vinsæll áningastaður hjá ferðamönnum.
Fjölmörg svæði bíða innrásar Bláa hersins í lögsagnarumdæmi Grindavíkur og nokkuð  ljóst að heimamenn koma til með að ganga til liðs við herinn fremur en að verjast segir á vef Grindavíkur.
Mynd: Blái herinn og SEEDS við Saltfisksetrið, ós. Af vef Grindavíkur.
				
	
				




 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				