Bygg
Bygg

Fréttir

Blæs hraustlega í dag
Það blés hrautlega á þennan gangandi vegfaranda við Krossmóa í Reykjanesbæ nú rétt áðan. VF-mynd: Hilmar Bragi
Mánudagur 10. september 2012 kl. 09:07

Blæs hraustlega í dag

Norðan 15-23. Skýjað, en þurrt að kalla. Hvassir vindstrengir við fjöll. Vestlægari og dregur heldur úr vindi í kvöld og nótt. Norðan 5-10 síðdegis á morgun. Hiti 3 til 8 stig.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Norðan 10-18 og hvassar vindhviður á Kjalarnesi. Skýjað, en þurrt að kalla. Lægir í nótt, N 5-10 á morgun. Hiti 3 til 9 stig.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:
Hægir vindar og víða bjartviðri framan af degi, en síðan vaxandi suðaustanátt, 10-15 m/s og rigning S- og V-til um kvöldið. Hiti 1 til 8 stig, svalast NA-til.

Á fimmtudag:
Norðaustlæg átt, víða 8-13 m/s og dálítil rigning, einkum A-lands. Hiti 2 til 10 stig, mildast syðst.

Á föstudag:
Hæg norðvestanátt og skúrir N- og A-lands, en annars þurrt. Fremur milt veður.

Á laugardag og sunnudag:
Breytileg átt með úrkomu víða á landinu, en áfram milt veður.