Bláa Lóns þrautin á fjallahjóli 2006

Bláa Lóns þrautin, sem er skipulögð af Hjólreiðafélagi Reykjavíkur (HFR) í samvinnu við Bláa Lónið og Hafnarfjarðarbæ, er fjölmennasta hjólakeppnin fyrir fullorðna sem haldin er hér á landi. Þrautin hefst við íþróttahúsið við Strandgötu í Hafnarfirði
kl. 10.00 og hjólar þá hópurinn saman í lögreglufylgd til kirkjugarðsins þar sem tímataka hefst.
Hjólað verður hefðbundna leið sem er 55 km. Í ár verður boðið upp á nýjung fyrir þátttakendur sem er að taka 35 km auka krók þar sem hjólað verður í kringum Reykjanesvita. Ekki er nauðsynlegt að ákveða vegalengdina fyrirfram.
Þrautin er opin öllum hjólreiðamönnum 15 ára og eldri. Í 55 km vegalengd verður keppt í flokkum 15-16 ára, 17-18 ára, 19-29 ára, 30-39 ára og 40 ára og eldri. Í 90 km vegalengd verður keppt í flokkum 17-18 ára, 19-29 ára, 30-39 ára og 40 ára og eldri. Einnig verður boðið upp á liðakeppni í 55 km vegalengd þar sem 3-5 keppendur eru í liði. Í liðakeppninni eru það þrír bestu tímarnir gilda en að minnsta kosti 3 liðsmenn verða að ljúka keppni. Tímatöku lýkur við markið kl. 16.00. Verðlaunaafhending mun fara fram í fundarsalnum í Bláa Lóninu kl. 15.30 og verða verðlaun veitt fyrir fyrsta sæti í hverjum flokki í báðum vegalengdum.
Keppnisgjald er 2.000 krónur. Netskráningu lýkur 8. júní en eftir þann dag verður einungis hægt að skrá sig á keppnisdag milli kl. 8.00 og 9.30 og þá er gjaldið 2.500 krónur. Innifalið í skráningargjaldinu er aðgangur í Bláa lónið og létt máltíð eftir þrautina. Flutningur til baka fyrir hjólin verður kl. 16.00 frá Bláa lóninu. Hjólin verða flutt með sendibíl þátttakendum að kostnaðarlausu. Þeir sem kjósa að taka áætlunarrútu til baka greiða sjálfir fyrir hana. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu HFR sem er www.hfr.is