Bláa lónið/Laugarvatn: Ekki þátttaka í fjármögnun
„Engar ákvarðanir hafa verið teknar varðandi hugsanlega þátttöku Bláa lónsins h.f. í rekstri heilsulindar á Laugarvatni. Þá hefur Bláa lónið enga ákvörðun tekið um að leggja hlutafé til uppbyggingar heilsulindarinnar,” segir Grímur Sæmundsen, framkvæmdastjóri Bláa lónsins í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.
Grímur undirritaði síðastliðinn laugardag, fyrir hönd fyrirtækisins, viljayfirlýsingu án skuldbindinga um hugsanlega rekstrarþátttöku í heilsulind sem fyrirhugað er að byggja á Laugarvatni og taki til starfa árið 2007, ef áætlanir ganga eftir.
Sá leiði misskilningur átti sér stað í sjónvarpsfrétt RÚV laugardaginn 23. október að fram kom að ákveðið hafi verið að Bláa lónið myndi reka heilsulind á Laugarvatni auk þess að leggja fram 50 m.kr. hlutafé til uppbyggingar heilsulindarinnar. Hið rétta er að einungis viljayfirlýsing um hugsanlega aðkomu Bláa lónsins að rekstri heilsulindar á Laugarvatni var undirrituð og Bláa lónið hefur enga ákvörðun tekið um að leggja fram hlutafé til uppbyggingar á Laugarvatni.
Grímur segir að sér þyki það miður að þessi misskilningur hafi átt sér stað í fréttaflutningi og hann sé ekki frá Bláa lóninu kominn. „Uppbygging Bláa lónsins – heilsulindar hefur gengið vel og það er ánægjulegt fyrir okkur að aðrir leiti til okkar með óskum um að við miðlum af þekkingu okkar og reynslu til frekari uppbyggingar heilsulinda á Íslandi. Á næstu misserum munum við hinsvegar leggja allt okkar fjármagn og krafta í áframhaldandi þróun og uppbyggingu Bláa lónsins – heilsulindar og annarrar starfsemi okkar í Svartsengi,” sagði Grímur.