Bláa lónið styrkir umhyggju
Bláa Lónið hefur veitt Umhyggju, félagi langveikra barna og fjölskyldna þeirra, styrk sem felst í 10 fjölskyldukortum. Hvert kort veitir ótakmarkaðan aðgang í Bláa Lónið fyrir tvo fullorðna og fjögur börn 16 ára og yngri. Heildarverðmæti styrksins er 360.000 krónur.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónins hf., afhenti Rögnu K. Marínósdóttur, framkvæmdastjóra Umhyggju, og Hafsteini Helgasyni, 15 ára félaga í Umhyggju kortin í Bláa Lóninu í síðustu viku. Bláa Lónið styrkir góð málefni á ári hverju í stað þess að senda viðskiptavinum jólakort.
Hafsteinn sem er 15 ára nemandi í Njarðvíkurskóla veitti fyrsta kortinu viðtöku. Hann sagði það skemmtilegt að hafa möguleika á að bjóða fjölskylduni í Bláa Lónið þar sem hún gæti átt góða stund saman.