Bláa lónið styrkir íþróttafélögin á Suðurnesjum
30 styrkir afhentir.
Árleg styrkveiting Bláa Lónsins til allra íþróttafélaganna á Suðurnesjum fór fram í dag á föstudag. Fulltrúar íþróttafélaganna tóku við styrkjunum í móttöku sem haldin var af þessu tilefni. Alls voru um 30 styrkir afhentir.
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, sagði við þetta tækifæri að það væri mikill heiður fyrir Bláa Lónið að styðja við hið óeigingjarna starf sem er unnið innan íþróttahreyfingarinnar. Ingigerður Sæmundsdóttir, nýkjörinn formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, sagði að stuðningur Bláa Lónsins við íþróttafélögin á Suðurnesjum, sem væri mikið íþróttasvæði, sýndi í verki mikilvæga samfélagslega ábyrgð.
VF-mynd/Olga Björt