Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bláa Lónið styrkir heiðursþátttöku Íslands á bókasýningunni í Frankfurt
Miðvikudagur 2. mars 2011 kl. 09:17

Bláa Lónið styrkir heiðursþátttöku Íslands á bókasýningunni í Frankfurt

Sögueyjan Ísland og Bláa Lónið hafa gert með sér samkomulag um að Bláa Lónið verði einn af styrktaraðilum heiðursþátttöku Íslands á bókasýningunni í Frankfurt. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins hf, og Halldór Guðmundsson, verkefnisstjóri Sögueyjunnar, undirrituð samninginn föstudaginn 25. febrúar.


Grímur sagði það vera bæði ánægjulegt og mikilvægt fyrir Bláa Lónið að taka þátt í verkefninu og stuðla þannig að enn frekari áhuga Þjóðverja á landi og þjóð í gegnum bókmenntir sem eru mikilvægur þáttur í menningu okkar Íslendinga. „Árlega heimsækja rúmlega fjögur hundruð þúsund gestir Bláa Lónið sem í dag er einni vinsælasti áfangastaður erlendra ferðamanna er sækja Ísland heim. Gestir af þýska málsvæðinu eru þar fjölmennur hópur.“

Bláa Lónið mun verða hluti af kynningarmynd í sýningarskála Íslands á Bókasýningunni í Frankfurt í október. Íslenskar bókmenntir og íslensk náttúra verða í aðalhlutverki í kynningarmyndinni. Halldór sagði það vera sérstaka ánægju fyrir Sögueyjuna að fá svo öflugan bakhjarl og samstarfsaðila í þetta spennandi verkefni sem framundan er.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024