Bláa Lónið Retreat hlaut Steinsteypuverðlaunin 2019
Steinsteypuverðlaunin 2019 voru veitt við hátíðlega athöfn á Steinsteypudeginum á Grand Hótel 15. febrúar sl. en þau eru veitt fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. Bláa Lónið Retreat, Hótel og Heilsulind, með áherslu á mynsturvegg, sem hlaut verðlaunin að þessu sinni.
Í ár bárust Steinsteypufélagi Íslands alls 13 tillögur og af þeim þrettán tillögum voru valin fimm mannvirki til að skoða betur: Ástjarnarkirkja – Safnaðarheimili, Bláa Lónið Retreat – Hótel og heilsulind – áhersla á mynsturvegg, Brú í mislægum vegamótum Reykjanesbrautar og Krýsuvíkurvegar, Búrfellsstöð II – Stoðveggur úr vistvænni steypu og Guðlaug við Langasand á Akranesi.
Að þessu sinni var það Bláa Lónið Retreat, Hótel og Heilsulind, með áherslu á mynsturvegg, sem hlaut verðlaunin. Það er álit dómnefndar að steinsteypa nýtur sín vel á mörgun stöðum í byggingunni, að innan sem utan, og einstaklega vel hafi tekist til við framkvæmd á mynsturveggnum sjálfum. Mikil áhersla er á frumleika og er hönnun og framkvæmd framúrskarandi. Eldvörp (Bláa Lónið) er eigandi verksins. Um hönnun sáu Basalt Arkitektar og Efla verkfræðistofa, framkvæmd var í höndum JÁVERK og steypan í mannvirkið kom frá Steypustöðinni.
Stjórn Steinsteypufélags Íslands sá um að velja mannvirkið sem hlaut Steinsteypuverðlaunin 2019, segir í frétt á vef Steinsteypufélags Íslands.
Frá afhendingu steinsteypuverðlaunanna. Mynd af vef Steinsteypufélags Íslands.
Mynd af vef Steinsteypufélags Íslands.
Mynd af vef Steinsteypufélags Íslands.
Mynd úr Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta þar sem fjallað var um Bláa Lónið Retreat.