Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Bláa Lónið opnar nýja heilsulind og hótel í heimsklassa
Föstudagur 3. mars 2017 kl. 14:45

Bláa Lónið opnar nýja heilsulind og hótel í heimsklassa

- Auglýst eftir stjórnendum og starfsmönnum í 165 stöður á næstunni

Bláa Lónið opnar í haust nýtt upplifunarsvæði, hágæða hótel og veitingastaði þar sem áhersla verður lögð á einstaka upplifun gesta. Fyrirtækið undirbýr nú ráðningar á starfsfólki í tengslum við verkefnið. Á annað hundrað fjölbreytt störf verða til í tengslum við uppbygginguna. 

Framkvæmdir  við upplifunarsvæðið og hótelið, sem staðsett er í hraunbreiðunni vestan við núverandi lón, eru vel á veg komnar. Áhersla er lögð á að skapa einstakt umhverfi og upplifun sem byggir á jarðsjó og náttúrulegu umhverfi Bláa Lónsins. Nafn hótelsins er Moss Hotel og heilsulindin mun bera heitið Lava Cove. Nýr hágæðaveitingastaður, Moss Restaurant, verður einnig starfræktur á hótelinu ásamt Lava Cove Restaurant, segir í tilkynningu frá Bláa Lóninu.

Spennandi atvinnutækifæri í einu af undrum veraldar
Um 165 manns munu starfa við hótelið og heilsulindina og verða störfin afar fjölbreytt. Á næstu dögum mun Bláa Lónið auglýsa eftir móttökustjórum og móttökustarfsmönnum, stjórnendum og starfsfólki í herbergisþjónustu- og þrifum, einkaþjónum og starfsfólki gestamóttöku. Þjálfun og starfsþróun eru mikilvægir þættir í mannauðsstefnu Bláa Lónsins og fá allir starfsmenn þjálfun er lýtur að hágæðaþjónustu.
Bláa Lónið er í dag eitt þekktasta vörumerki Íslands og hefur National Geographic valið Bláa Lónið sem eitt af 25 undrum veraldar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Heilsulind og hótel í heimsklassa
Moss Hotel  verður 62 herbergja  hótel og verður í hærri gæðaflokki en áður hefur þekkst á Íslandi. Öll þjónusta og aðbúnaður miða að því að gestirnir njóti þess besta í mat, gistingu og upplifun í umhverfi Bláa Lónsins 
Heilsulindin Lava Cove verður einnig einstæð í sínum flokki.  Gestir fara undir yfirborð jarðar þar sem þeir munu njóta spa upplifunar sem byggir á virkum efnum Bláa Lónsins. Þaðan hafa gestir aðgang að nýju lóni sem er umlukið háum hraunveggjum.  Á veitingastaðnum Moss Restaurant verður áhersla á hágæðaupplifun og þjónustu. Íslenskt hráefni verður í hávegum haft og gestir munu njóta útsýnis yfir  umhverfi Bláa Lónsins.

„Opnunin á nýju upplifunarsvæði og hóteli næsta haust verður mikilvægur áfangi í starfsemi Bláa Lónsins. Með þessu erum við að þróa og breikka starfsemi okkar.  Lykillinn að þeim árangri sem við höfum náð á undanförnum árum byggir á einstakri náttúru Bláa Lónsins og einlægum vilja starfsfólks okkar til að veita  gestum frábæra þjónustu og skapa ógleymanlegar minningar.  Á næstu vikum munum við leita að fólki sem hefur brennandi áhuga á að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu með okkur,“ segir Dagný Pétursdóttir framkvæmdastjóri Bláa Lónsins.