HSS
HSS

Fréttir

Bláa lónið lokar starfsemi sinni í Svartsengi
Bláa lónið. Mynd/Jón Steinar Sæmundsson
Fimmtudagur 9. nóvember 2023 kl. 08:26

Bláa lónið lokar starfsemi sinni í Svartsengi

Starfsmenn fá greidd laun og gestir endurgreiðslu

Bláa lónið – Svartsengi lokar starfsemi í eina viku en í nótt gengu yfir kröftugir jarðskjálftar sem eiga upptök sín nærri Bláa lóninu. 

Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Bláa Lónið hf. hefur ákveðið að loka starfstöðvum sínum í Svartsengi í eina viku, þrátt fyrir að viðbúnaðarstig almannavarna hafi ekki verið aukið - staðan verður metin í framhaldinu. Lokunin mun taka gildi 9. nóvember og standa til kl. 07:00, 16. nóvember.

Truflun á upplifun gesta í nótt og langvarandi aukið álag á starfsmenn eru meginástæður lokunarinnar.

Bláa Lónið hf. mun fylgjast með framgangi hræringanna næstu sólarhringa og meta stöðuna. Okkar frábæru og tryggu starfsmenn fá greidd full laun meðan á lokun stendur og gestir fulla endurgreiðslu.“