Bygg
Bygg

Fréttir

Þriðjudagur 16. maí 2000 kl. 22:06

Bláa lónið í vegasamband til Grindavíkur!

Tilboð fyrir lagningu Bláalónsvegar, voru opnuð 2. maí sl. Fimm aðilar buðu í verkið en Berglín ehf. og Hjarðarnesbræður ehf. voru með lægsta tilboðið. Tilboð þeirra hljóðaði uppá tæplega 36 millj. kr., sem er 102,2% hlutfall af upphaflegri kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Bláalónsvegurinn mun liggja frá Bláa lóninu og yfir að Nesvegi í Grindavík. Vegalengdin er 4,7 km. og verkinu verður skipt í tvo áfanga. Fyrri áfanga á að vera lokið 15. júlí á þessu ári, samkvæmt verklýsingu, en í honum felst að ganga frá fyllingum og neðra burðarlagi ásamt ræsum og steyptum stokki. Síðari áfanga á í síðasta lagi að vera lokið þann 1.júlí 2001, en þá skal ljúka gerð burðarlaga og lögn klæðningar auk alls lokafrágangs.
Bílakjarninn
Bílakjarninn