HSS
HSS

Fréttir

Bláa lónið: Grein The Sunday Times atvinnurógur
Þriðjudagur 24. maí 2005 kl. 11:02

Bláa lónið: Grein The Sunday Times atvinnurógur

Bláa lónið fékk ekki góða umfjöllun í breska ferðablaði The Sunday Times. Þar voru teknir fyrir helstu áfangastaði ferðamanna í dag sem samkvæmt blaðinu standast ekki væntingar.

Bláa lóninu var lýst sem manngerðum pytti en ekki þeirri náttúruauðlind sem auglýsingar um lónið ganga út á. Byggingin er ruglingsleg og þegar loksins sé búið að finna búningsklefann mætir manni mannmergð og táfýla, ekki ólíkt því sem maður var vanur í leikfimiskennslu. The Sunday Times lýsir verunni ofan í lóninu eins og að ganga á hrárri lifur. Það er þó látið ósagt hvar hann upplifaði slíkt.

Grímur Sæmundsen, framkvæmdarstjóri Bláa lónsins sagði í viðtali við Morgunblaðið að um atvinnuróg væri að ræða sem eigi ekkert skylt við sanngjarna gagnrýni. Þess verður krafist að missagnir og rangfærslur greinarhöfundar verði leiðréttar.


Grein The Sunday Times um Bláa lónið

Bílakjarninn
Bílakjarninn